Phil Foden, leikmaður Manchester City, var valinn besti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu 2023/24.
Foden er 23 ára og hefur farið á kostum með þreföldum Englandsmeisturum City sem geta tryggt sér titilinn í fjórða sinn í röð á morgun, með sigri gegn West Ham.
Foden hefur skorað 17 mörk á tímabilinu og lagt upp átta í 34 leikjum hingað til.
Hann var valinn besti ungi leikmaður tímabilsins 2020/21 og 2021/22 og var tilnefndur aftur í ár en Cole Palmer, leikmaður Chelsea, hlaut heiðurinn.