Jóhann Berg Guðmundsson yfirgefur enska knattspyrnufélagið Burnley eftir tímabilið þegar samningur hans rennur út.
Burnley tilkynnti í dag að Jóhann og liðsfélagi hans, Jack Cork væru á förum í sumar en Jóhann hefur verið þar í átta ár.
Hann mun spila síðasta leik sinn með liðinu gegn Nottingham Forest á Turf Moor á morgun.
Jóhann Berg er 33 ára gamall hefur spilað 226 leiki með Burnley í efstu og næst efstu deild á Englandi. Hann kom þaðan frá Charlton sumarið 2016 og hefur skorað 14 mörk.