Portúgalski knattspyrnumaðurinn Rodrigo Gomes verður leikmaður enska félagsins Wolves á næstu dögum.
Enskir miðlar greina frá en Gomes er 20 ára gamall kantmaður sem kemur frá Braga í heimalandinu.
Wolves mun greiða 12,7 milljónir punda fyrir leikmanninn sem mun skrifa undir fimm ára samning.
Gomes er enn einn Portúgalinn sem Wolves fær til sín á síðustu árum en félagið er með sterk tengsl við landið.