Enska knattspyrnufélagið Manchester City býst við því að vinna mál sem það hefur höfðað gegn ensku úrvalsdeildinni.
Á fótboltamiðlinum Football Insider segir að nokkur önnur félög í úrvalsdeildinni hyggist styðja við bakið á Man. City í málflutningi félagsins vegna pirrings sem stafi af hluta af fjárhagsreglum deildarinnar.
Þar segir að forráðamenn félagsins séu vissir um að vinna málið og líti þar til þess að Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, mistókst fyrir nokkrum árum að meina þeim þátttöku í Evrópukeppnum.
Man. City var þá upphaflega úrskurðað í tveggja ára keppnisbann frá Evrópukeppnum í byrjun árs 2020 en Alþjóðaíþróttadómstóllinn sneri dómnum í júlí sama ár.
Forráðamenn Man. City vilja meina að hluti af fjárhagsreglum deildarinnar séu ólögmætar og þá sér í lagi þær reglur sem snúa að því að óheimilt sé að félög fái auglýsingatekjur frá fyrirtækjum sem eigendur þeirra eiga.
Eins og sakir standa má City t.a.m. ekki hafa auglýsingatekjur af því að auglýsa fyrirtæki í eigu eigenda félagsins. Fara forráðamenn City fram á að reglan verði lögð niður þar sem hún sé ólögmæt, sem og að enska úrvalsdeildin greiði félaginu skaðabætur vegna tekjumissis.
Málsmeðferð hófst í dag og er talið að það muni taka um tvær vikur fyrir gerðardóm að komast að niðurstöðu.