Enska knattspyrnusambandið vill ráða Pep Guardiola sem nýjan landsliðsþjálfara karlaliðs þjóðarinnar. The Independent greinir frá.
Gareth Southgate hætti með enska liðið eftir tapið gegn Spáni í úrslitum Evrópumótsins um síðustu helgi og leitar sambandið nú að eftirmanni hans.
Guardiola er samningsbundinn Manchester City í eitt ár í viðbót og eru forráðamenn sambandsins reiðubúnir að bíða eftir að hann verði samningslaus og ráða bráðabirgðastjóra í millitíðinni.
Spánverjinn hefur náð einstaklega góðum árangri síðan hann fór út í þjálfun og hefur unnið fjölmarga titla með Barcelona, Bayern München og Manchester City.