Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur samþykkt tíu milljón punda tilboð austurríska félagsins RB Salzburg í hinn 19 ára gamla Bobby Clark.
Hollendingurinn Pepijn Lijnders, sem var aðstoðarmaður Jürgen Klopp hjá Liverpool, er stjóri austurríska liðsins.
Clark hefur leikið sex leiki fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og komu fimm þeirra á síðustu leiktíð. Hann hefur alls leikið 14 leiki fyrir aðallið félagsins og skorað í þeim eitt mark.