Íslenski landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson lagði upp annað mark Birmingham í 2:0-sigri liðsins gegn Rotherham í ensku C-deildinni í dag.
Tomoki Iwata kom Birmingham yfir á 14. mínútu. Jay Stansfield tvöfaldaði síðan forystu Birmingham á 22. mínútu eftir stoðsendingu frá Willumi Þór.
Willum Þór spilaði allan leikinn fyrir Birmingham en Alfons kom inn á 79. mínútu.
Jason Daði Svanþórsson spilaði fyrstu 86 mínúturnar í 1:0-sigri Grimsby á Bromley í ensku D-deildinni í dag. Danny Rose skoraði mark Grimsby.
Í ensku B-deildinni var Guðlaugur Victor Pálsson ónotaður varamaður hjá Plymouth í 1:0-tapi liðsins gegn West Bromwich Albion.