Trent Alexander-Arnold, enskur landsliðsmaður og leikmaður Liverpool, segir að það að vinna bikara sé mikilvægast í ákvörðunarferlinu um framlengingu á samningi sínum hjá félaginu.
Samningur Alexander-Arnold, sem er að verða 26 ára á árinu, rennur út næsta sumar hjá Liverpool.
„Ég hef alltaf sagt að mig langar að vera fyrirliði félagsins. Það er markmiðið mitt. Hvort það mun gerast er ekki í mínum höndum,“ sagði Alexander-Arnold.
„Mikilvægasti hluturinn er alltaf bikarar. Mig langar að vinna bikara,“ sagði Alexander-Arnold aðspurður hvað væri mikilvægast í ákvörðunarferlinu.
Liverpool hefur byrjað tímabilið vel en liðið situr í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 12 stig.
„Við byrjum tímabilið vel þótt stutt sé liðið á það, en við þurfum mikinn stöðugleika. Þetta á eftir að vera erfitt en við ætlum að vinna eins marga bikara og við getum,“ sagði Alexander-Arnold.