Mosquera með slitið krossband

Mosquera borinn af velli.
Mosquera borinn af velli. AFP/Justin Tallis

Yerson Mosquera, varnarmaður Wolves í ensku úrvalsdeildinni, sleit krossbönd í 3:1-tapi Úlfanna gegn nágrönnum sínum í Aston Villa á laugardaginn. 

Tímabil Wolves fer illa af stað en liðið er án sigurs að loknum fimm leikjum og tekur á móti Liverpool í næstu umferð.

Hinn kólumbíski Mosquera hefur spilað alla leiki Wolves fram til þessa á tímabilinu en ólíklegt er að hann snúi aftur á völlinn fyrr en næsta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert