„Ekkert kjaftæði“

Arne Slot hefur heillað marga í upphafi tímabils.
Arne Slot hefur heillað marga í upphafi tímabils. AFP/Gabriel Bouys

Stjóratíð Arne Slot hjá Liverpool hefur farið vel af stað en Liverpool hefur unnið fimm af fyrstu sex leikjum Hollendingsins. Blaðamaður sem þekkir Liverpool mjög vel segir sjálfstraust Slot vera hans besta eiginleika.

James Pearce hefur fylgt Liverpool um árabil fyrir hina ýmsu fjölmiðla og hann segir trú sína á Slot aukast með hverjum leiknum.

„Hann er hann sjálfur og reyndi aldrei að vera einhver sem hann er ekki. Hann ber virðingu fyrir fortíð félagsins en hefur trú á eigin hæfni til að taka við af Klopp,“ segir Pearce.

„Þú hittir oft fólk sem hagar sér öðruvísi fyrir framan myndavélarnar. Það sem ég kann að meta við Slot er að hann segir hlutina eins og þeir eru. Það er ekkert kjaftæði. Heiðarleikinn er mjög vinsæll meðal stuðningsmanna félagsins,“ bætir Pearce við en hann skrifar um Liverpool fyrir The Athletic.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert