Arsenal aftur á sigurbraut með sannfærandi hætti

Bukayo Saka og Alex Moreno eigast við í dag.
Bukayo Saka og Alex Moreno eigast við í dag. AFP/Ben Cremel

Arsenal vann sannfærandi sigur á Nottingham Forest, 3:0, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Með sigrinum fór Arsenal upp í 22 stig en Chelsea og Brighton eru með sama stigafjölda. Eru þau stigi á eftir Manchester City í öðru sæti og sex stigum á eftir toppliði Liverpool. Liverpool og City eiga bæði leik til góða. Forest er í sjötta sæti með 19 stig.

Arsenal byrjaði af krafti og sótti mikið fyrstu mínúturnar. Það skilaði sér í fyrsta marki leiksins á 15. mínútu er Bukayo Saka negldi boltann glæsilega í netið utarlega í teignum eftir sendingu frá Martin Ödegaard.

Forest komst lítið yfir miðju á meðan Saka og Leandro Trossard komust báðir nálægt því að skora hinum megin. Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri í hálfleiknum og var staðan eftir hann 1:0.

Thomas Partey kom inn á fyrir Arsenal fyrir seinni hálfleikinn og hann skoraði annað markið á 7. mínútu hans með fallegu skoti utan teigs í bláhornið fjær.

Eftir markið róaðist leikurinn töluvert. Ákefð Arsenal varð mun minni og hinum megin skapaði Forest sér sáralítið.

Ethan Nwaneri kom inn á sem varamaður á 82. mínútu og við það færðist aftur meiri kraftur í Arsenal-liðið og strákurinn ungi gerði þriðja markið á 86. mínútu er hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá öðrum varamanni, Raheem Sterling.

Hvorugt liðið komst nálægt því að skora eftir það og sannfærandi sigur Arsenal varð raunin.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Man. City 0:1 Tottenham opna
13. mín. James Maddison (Tottenham) skorar 0:1 - Gegn gangi leiksins! Kulusevski með frábæra sendingu á Maddison inn í teignum sem skorar af öryggi.

Leiklýsing

Arsenal 3:0 Nottingham F. opna loka
90. mín. Arsenal fær hornspyrnu Zinchenko nær í horn. Það verða að minnsta kosti fimm mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka