Tottenham skellti City í Manchester

James Maddison skoraði fyrstu tvö mörk Tottenham.
James Maddison skoraði fyrstu tvö mörk Tottenham. AFP/Adrian Dennis

Tottenham valtaði yfir Manchester City, 4:0, í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Manchester í kvöld. Þetta er fimmta tap City í röð og í fyrsta skipti í sögu Pep Guardiola sem hann tapar fimm leikjum í röð sem stjóri.

Úrslitin þýða að Manchester City situr áfram í öðru sæti með 23 stig, fimm stigum á eftir Liverpool á toppnum. Tottenham er í sjötta sæti með 19 stig.

Manchester City byrjaði viðureignina af krafti. Erling Haaland fékk tvö ágætis færi til að skora á fyrstu tíu mínútunum.

Tottenham komst yfir á 13. mínútu eftir fallega sókn. Dejan Kulusevski átti stórkostlega fyrirgjöf frá hægri á James Maddison sem kom á ferðinni og skoraði með viðstöðulausu skoti frá markteig. Mark gegn gangi leiksins. 

Aðeins sjö mínútum síðar var Maddison aftur á ferðinni. Josko Gvardiol gaf boltann klaufalega frá sér, beint á Maddison sem sendi boltann á Son Heung-Min. Son dró til sín varnarmenn og lagði boltann svo skemmtilega á Maddison í hlaupinu sem kláraði snyrtilega yfir Ederson.

Staðan í hálfleik 2:0, Tottenham í vil.

Þriðja mark Tottenham kom á 52. mínútu eftir laglega skyndisókn. Kulusevski fann Solanke á fjærstönginni sem lagði boltann út á Pedro Porro sem hamraði knettinum í netið.

Manchester City sótti án afláts en tókst ekki að koma boltanum í netið þrátt fyrir mörg góð tækifæri.

Á þriðju mínútu uppbótartímans gerði varamaðurinn Brennan Johnson endanlega út um leikinn. Timo Werner kom með sendingu fyrir markið á Johnson sem skoraði í autt markið. Lokaniðurstaða 4: 0-sigur Tottenham.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Arsenal 3:0 Nottingham F. opna
90. mín. Leik lokið Sannfærandi og sanngjarn sigur Arsenal í dag.

Leiklýsing

Man. City 0:4 Tottenham opna loka
90. mín. Það verða að lágmarki fjórar mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka