Mohamed Salah er draumaleikmaður allra liða í sádiarabísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Daily Mirror greinir frá en ef Salah færi til Sádi-Arabíu gætu félagskipti hans orðið stærri en þegar sjálfur Cristiano Ronaldo gekk í raðir félagsins Al-Nassr í desember 2022.
Salah er á síðasta ári samnings síns hjá Liverpool en hann hefur verið mikið orðaður við Sádi-Arabíu undanfarin ár.