Lykilmaður Arsenal tæpur fyrir morgundaginn

Gabriel, til vinstri, fagnar með Bukayo Saka.
Gabriel, til vinstri, fagnar með Bukayo Saka. AFP/Patricia de melo Moreira

Gabriel, einn af lykilmönnum Arsenal, er tæpur fyrir útileik liðsins gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun. 

Gabriel fór meiddur af velli í sigri Arsenal á Sporting, 5:1, í Meistaradeild Evrópu en hann skoraði þriðja mark Arsenal í leiknum. 

Mikel Arteta knattspyrnustjóri liðsins sagði á blaðamannafundi í dag að óvissa ríkti um þátttöku Gabriels í leiknum á morgun. 

Leikur West Ham og Arsenal hefst klukkan 17.30 á morgun og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka