Vinnur að stórum og krefjandi nýjum titlum

Skjáskot/Twitter/Hideo Kojima

Hideo Kojima og Kojima Productions, sem standa fyrir Metal Gear leikjaseríunni, eru núna að vinna að AAA tölvuleik sem „allir munu vilja spila“.

Hinn goðsagnakenndi leikjahönnuður sagði í útvarpsþættinum „Wonderful World of Game Music“ á NHK Radio frá því hvað væri um að vera í Kojima Productions um þessar mundir en hann sagði samt ekkert frá komandi AAA tölvuleik stúdíósins samkvæmt Genki á Twitter.

Kojima Productions sagðist vera að vinna að „stórum“ og „nýjum, krefjandi“ titlum en þar að auki upplýsti Hideo Kojima að hann vilji vinna að smærra verkefni sem er ekki opinn heimur eða skotleikur.

Að auki upplýsti Hideo Kojima að hann vilji vinna að smærra verkefni sem er ekki opinn heimur eða skotleikur og að framleiðslustúdíó hans í LA er einnig að vinna að anime, ásamt leiklist og kvikmyndum.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert