Úrvalsdeildin í Overwatch að hefjast

Overwatch 2.
Overwatch 2. Grafík/Blizzard Entertainment, Inc.

Almenna mótaröðin í tölvuleiknum Overwatch er að fara af stað á ný og er undirbúningur nú þegar hafinn. Keppt verður um síðasta sætið í Úrvalsdeildinni í kvöld.

Í kvöld klukkan 18:00 mætast liðin Þorbjörn frá Grindavík og Hrútar frá Sauðárkróki og sem fyrr segir keppa þau um síðasta plássið í Úrvalsdeildinni í Overwatch á Íslandi.

Nú þegar eru liðin Böðlar, Atgeirar, Tröll, Musteri, XY, Bölvun og Silfur búin að tryggja sér sæti í Úrvalsdeildinni.

Eftir leikinn í kvöld mun þá annaðhvort Hrútar eða Þorbjörn detta niður í Opnu Deildina þar sem liðin Útlagar, Musteri Akademían, Bölvun Akademían, XY Akademían, Djáknar, Fylkir, Kartöflur og Berserkir sitja.

Hægt er að fylgjast með leiknum í kvöld beinni á Twitch-rásunum Overwatch Iceland og Rafithrottir en einnig hafa áhugasamir kost á að horfa á leikinn í rafíþróttahöllinni Arena.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert