Þúsundir tölvuleikja eru á útsölu á leikjaveitunni Steam þar sem hin árlega sumarútsala veitunnar er hafin. Útsalan stendur yfir fram að 7. júlí og eru leikir á allt að 85% afslætti.
Steam kallar útsöluna „Sumarútsala Steam 3000“ og hefur tímaflakkandi stríðnispúka að nafni Clorthax í fararbroddi.
Clorthax kemur með „tíu bestu leiki framtíðarinnar“ og á meðan útsölunni stendur mun hann gefa upp vísbendingar um leiki sem þú getur safnað.
Hægt er að vinna sér inn verðlaun með því að öðlast ákveðna titla, en nánar um Clorthax má finna með því að fylgja þessum hlekk.
Hér að neðan er listi yfir nokkra leiki sem eru á afslætti en það er einnig hægt að kaupa gjafabréf og senda vinum sínum eða fjölskyldumeðlimum.
DRAGON BALL FighterZ er á 85% afslætti og kostar nú 8,99 dali eða 1.192 krónur
Sid Meier's Civilization VI er á 85% afslætti og kostar nú 8,99 dali eða 1.192 krónur
FIFA 22 er á 84% afslætti og kostar nú 9,59 dali eða 1.271 krónur
Batman Arkham Knight er á 80% afslætti og kostar nú 3,99 dali eða 529 krónur
The Witcher: Wild Hunt er á 80% afslætti og kostar nú 7,99 dali eða 1.059 krónur
Dishonored er á 80% afslætti og kostar nú 1,99 dali eða 264 krónur
Dishonored 2 er á 80% afslætti og kostar nú 5,99 dali eða 794 krónur
Star Wars Jedi: Fallen Order er á 75% afslætti og kostar nú 9,99 dali eða 1.324 krónur
Street Fighter V er á 75% afslætti og kostar nú 4,99 dali eða 661 krónur
The Sims 4 er á 75% afslætti og kostar nú 4,99 dali eða 661 krónur
It Takes Two er á 60% afslætti og kostar nú 15,99 dali eða 2.119 krónur
Tom Clancy's Rainbow Six Siege er á 60% afslætti og kostar nú 7,99 dali eða 1.059 krónur
Football Manager 2022 er á 50% afslætti og kostar nú 27,49 dali eða 3.644 krónur
Ghostwire: Tokyo er á 50% afslætti og kostar nú 29,99 dali eða 3.975 krónur
Red Dead Redemption 2 er á 50% afslætti og kostar nú 29,99 dali eða 3.975 krónur
Sea of Thieves er á 50% afslætti og kostar nú 19,99 dali eða 2.649 krónur
Days Gone er á 50% afslætti og kostar nú 24,99 dali eða 3.312 krónur
Dying Light 2 Stay Human er á 33% afslætti og kostar nú 39,99 dali eða 5.300 krónur
Final Fantasy VII Remake er á 29% afslætti og kostar nú 49,69 dali eða 6.586 krónur
LEGO Star Wars: The Skywalker Saga er á 25% afslætti og kostar nú 37,49 dali eða 4.969 krónur
God of War er á 20% afslætti og kostar nú 39,99 dali eða 5.300 krónur
Tiny Tina's Wonderlands er á 20% afslætti og kostar nú 47,99 dali eða 6.361 krónur
Teenage Mutant Ninja Turtles: Shredder's Revenge er á 10% afslætti og kostar nú 22,49 dali eða 2.981 krónur
Alla leiki má finna á heimasíðu Steam.