Gengur illa að halda hoppinu inni

Hoppið umtalaða.
Hoppið umtalaða. Skjáskot/Fortnite

Nýjasta uppfærsla Fortnite, sem ber heitið Chapter 4: Season 1, hefur ekki gengið eins smurt fyrir sig og framleiðandinn vonaði. Margar villur hafa borið á garð spilara og hafa sumir spilarar sýnt frá leikjum sínum þegar eitthvað fer úrskeiðis. 

Hreyfingum breytt og hoppum bætt við

Í uppfærslunni breyttist verulega hvernig spilari getur beitt leikmanni sínum en meðal annars er hægt að hoppa og renna sér yfir girðingar og aðra lága hluti, þetta átti að breyta því hvernig leikurinn er spilaður og meiri möguleiki fyrir þá sem eru ekki góðir að byggja að forða sér undan andstæðingum. 

Leikmönnum skotið upp í loft

Myndskeið hafa verið að birtast á miðlinum reddit.com þar sem leikmenn sýna frá klippum úr Fortnite. Eitt myndskeiðið sýnir mjög vel hvað spilarar þurfa að hafa áhyggjur af en einn þeirra hoppar yfir lítinn stein og er skotið í loft upp, án skiljanlegs aðdraganda. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem framleiðendur Fortnite glíma við þennan galla en í desember þurftu þeir að taka út möguleikann að framkvæma þessi hopp og vonuðust spilarar eftir því að þetta hefði verið lagað að fullu þegar hoppunum var bætt aftur inn núna í janúar.

Fortnite deildi á Twitter-síðu sinni að vegna gallans væri búið að fjarlægja hoppið og að unnið væri að því að laga gallann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert