Ekki klessa um helgina

Gunther Steiner (t.v.) og Kevin Magnussen ræðast við.
Gunther Steiner (t.v.) og Kevin Magnussen ræðast við. mbl.is/Haas

Ökumenn Haas-liðsins hafa varaðir við glannalegum akstri í Montreal í Kanada um helgina því skemmdir á bílunum eins og t.d. við árekstur getur þýtt að þeir komist ekki lengra.

Ástæðan fyrir aðvöruninni er skortur á varahlutum í bíla Haas í Montreal. Liðssjórinn Guenther Steiner segir frekar tómlegt um að lítast í vöruhúsi bandaríska liðsins.

„Engar klessukeyrslur um helgina,“ sagði Steiner í aðvörun sinni til þeirra Romain Grosjean og Kevins Magnussen.

Mikið hefur verið um óhöpp af hálfu þeirra það sem af er - einkum þó Grosjean sem skemmdi bíl sinn umtalsvert í bæði Bakú og Barcelona. Hefur það bitnað á varahlutalagernum. 

Vegna þess að í hættu stefndi voru nýlegir íhlutar í bílum Haas fjarlægðir fyrir kappaksturinn í Mónakó og gamlir  settir í staðinn. Skýrir það að hluta hraðaskort bílanna á götum dvergríkisins en þeir komu í mark í 13. og 15. sæti.

Þrátt fyrir varahlutaskort mætir Haas með umtalsverðar uppfærslur í bílana í Montreal. Þær eru meðal annars fólgnar í nýjum framvæng og vindskeiðum á belg bílsins. ar mun

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert