Renault verður Alpine

Táknmerki Alpine bílanna.
Táknmerki Alpine bílanna. AFP

Renault liðið tekur nafnbreytingu fyrir keppnistímabilið  2021 og kennt við sportbílinn Renault Alpine. Verður það nefnt Alpine F1 team.

Renault staðfesti þetta í morgun og einnig það að bílar liðsins yrðu í nýjum litum sem byggja myndu á litum franska fánans, þ.e. bláum, rauðum og hvítum.

Alpine bíllinn hefur tengst rallkeppni meira en öðrum akstursíþróttum. Var ákveðið að fara út í þessar breytingar í tilefni mikilla breytinga á lögum og reglum formúlunnar fyrir 2022 keppnistíðina. Vonast Renault til að eiga reglulega menn á verðlaunapalli.

Ökumenn Alpine á næsta ári verða þeir Fernando Alonso og Esteban Ocon. Snýr Alonso öðru sinni aftur til liðsins en á Renaultbíl varð hann heimsmeistari ökumanna árin 2005 og 2006.

Alpine A110 sportbíll.
Alpine A110 sportbíll.
Sýningarsalir Alpine í Boulogne Billancourt við París.
Sýningarsalir Alpine í Boulogne Billancourt við París. AFP
Alpine A110
Alpine A110
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert