„Ég er orðlaus yfir bæði frábærri frammistöðu KR en eins slökum leik af okkar hálfu og satt best að segja held ég að þessi bikarleikur sé versti leikur liðsins frá því ég tók við fyrir fimm árum síðan,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals að loknum bikarúrslitaleiknum í dag en hún var eðlilega afar svekkt með dapra útkomuna.
En það er satt að það vantaði ekki stemmninguna fyrir leikinn en við komumst aldrei í takt við hann og ég kann bara engin svör við þessum leik af okkar hálfu. Alls engin.