Benzema úti í kuldanum hjá Real Madrid

Karim Benzema æfði einsamall á æfingasvæði Real Madrid í dag.
Karim Benzema æfði einsamall á æfingasvæði Real Madrid í dag. AFP

Rafael Benítez þjálfari Real Madrid hefur tekið þá ákvörðun að velja ekki franska landsliðsmanninn Karim Benzema í leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Sevilla í spænsku 1. deildinni á morgun.

Benzema hefur verið mikið í fréttum undanfarna daga en hann var í vikunni ákærður fyrir að eiga aðild að mútumáli þar sem hann og fleiri aðilar hótuðu að birta kynlífsmyndband af Mathieu Valbuena landsliðsmanni Frakka gegn gjaldi.

Benzema hefur ekki spilað með Real Madrid í síðustu leikjum vegna meiðsla en ástæða þess að hann er ekki valinn í hópinn eru ekki vegna meiðsla heldur telur Benítez að leikmaðurinn sé ekki tilbúinn andlega til að spila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert