Vilja framlengja við Rúnar Alex

Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland vill gera nýjan samning við markvörðinn Rúnar Alex Rúnarsson en samningur hans við félagið rennur út næsta vetur.

Carsten V. Jensen yfirmaður knattspyrnumála hjá Nordsjælland segir í viðtali við danska vefinn bold.dk að vinna sé í gangi að gera nýjan samning við Rúnar Alex, sem lék 20 leiki á milli stanganna hjá Nordsjælland í deildarkeppninni en Nordsjælland hafnaði í 5. sæti deildarinnar.

Rúnar Alex er 22 ára gamall og kom til danska liðsins frá KR árið 2014. Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðunum og þar af 17 leiki með U21 árs landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert