Björn í úrvalsliði Verdens Gang

Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann Sigurðarson Ljósmynd/Golli

Knattspyrnumaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson, framherji Molde er í úrvalsliði norska dagblaðsins Verdens Gang, fyrir frammistöðu sína á nýliðinni leiktíð. Björn skoraði 16 mörk í norsku deildinni er Molde hafnaði í 2. sæti. 

Aðeins Nicklas Bendtner og Ohi Omoiuanfo skoruðu meira en Björn á leiktíðinni. Björn var sex sinnum í liði umferðarinnar hjá miðlinum og fékk meðaleinkunnina 5,8 en hæsta einkunn er 10. Aðeins Samuel Adegbenro, leikmaður Rosenborg var með hærri meðaleinkunn eða 6,04.

Skagamaðurinn vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína á leiktíðinni og hefur hann verið orðaður við félög í stærri deildum Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka