Skilur ekki hvað Coutinho er að hugsa

Philippe Coutinho hefur fagnað sínu síðasta marki með Liverpool.
Philippe Coutinho hefur fagnað sínu síðasta marki með Liverpool. AFP

Phil Thompson, fyrrverandi leikmaður Liverpool, skilur ekki hvers vegna Philippe Coutinho er að yfirgefa Liverpool fyrir Barcelona. Spænska félagið borgar Liverpool tæpar 150 milljónir punda fyrir Coutinho en hann er næstdýrasti knattspyrnumaður sögunnar.

„Ég á erfitt með að skilja hvers vegna Coutinho er að skipta núna. Hann getur ekki spilað í Meistaradeildinni með Barcelona og liðið er að stinga af í spænsku deildinni. Hann vill svo vera í byrjunarliðinu í brasilíska landsliðinu á HM.“

„Ég er ekki viss um að hann muni spila alla leiki með Barcelona. Hann gæti spilað alla leiki hjá Liverpool og m.a í Meistaradeildinni. Ég skil ekki þessa tímasetningu, það væri betra fyrir alla ef hann myndi skipta næsta sumar,“ sagði Thompson að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert