Enn meiðist vonarstjarna Barcelona

Lionel Messi og Ousmane Dembele.
Lionel Messi og Ousmane Dembele. AFP

Ousmane Dembele, sem knattspyrnustórveldið Barcelona festi kaup á í sumar til þess að fylla skarð Neymars, hefur meiðst á ný eftir að hafa verið nýbúinn að ná sér af öðrum meiðslum.

Dembele fór meiddur af velli í fyrsta leik sínum í byrjunarliði í spænsku 1. deildinni í september. Hinn tvítugi Dembele kostaði um 150 milljónir evra og var aðeins að koma við sögu í þriðja leik sínum með Barcelona á tímabilinu. Hann sneri aftur í byrjun janúar, en hefur nú meiðst á ný.

Dembeele meiddist í 4:2-sigri Barcelona á Real Sociedad um helgina í sínum fjórða leik eftir endurkomuna. Hann meiddist á læri og verður frá næsta mánuðinn eða svo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert