Hannes Þór Halldórsson hélt marki sínu hreinu er Randers gerði markalaust jafntefli við Hobro í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Randers fékk skell um síðustu helgi þar sem liðið lá 5:1 gegn FC København og Hannes var staðráðinn í því að bæta upp fyrir þá frammistöðu en hann fékk sinn skerf af gagnrýni eftir leikinn. Í dag fékk Hannes tvö skot á sig og hélt landsliðsmarkvörðurinn hreinu.
Randers hefur 15 í stig í 14. og neðsta sæti deildarinnar. Hobro er í baráttu um að komast í sex liða úrslitakeppni um danska meistaratitilinn en liðið hefur 28 stig, jafnmörg og OB í 6. sætinu.