Ólafur og Karabükspor í slæmri stöðu

Ólafur Ingi Skúlason, til vinstri.
Ólafur Ingi Skúlason, til vinstri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ólafur Ingi Skúlason lék allan leikinn í 3:0 tapi Karabükspor gegn Akhisar Genclik í úrvalsdeild tyrkneska boltans í knattspyrnu.

Ólafur fékk gult spjald á 76. mínútu skömmu eftir þriðja markið.

Það gengur ekki margt upp hjá Karabükspor þessa dagana en liðið situr á botni deildarinnar með 12 stig og hefur aðeins unnið einn leik af síðustu 10.

Níu stig eru í öruggt sæti hjá Karabükspor þegar 22 umferðir eru búnar af 34 í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert