Rakel og Anna skoruðu báðar

Rakel Hönnudóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir skoruðu báðar í dag.
Rakel Hönnudóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir skoruðu báðar í dag. Ljósmynd/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Limhamn Bunkeflo vann þægilegan 6:1-sigur á Lidköping í sænska bikarnum í knattspyrnu í dag. Anna Björk Kristjánsdóttir og Rakel Hönnudóttir skoruðu hvor sitt markið fyrir Limhamn og léku allan leikinn.

Þrátt fyrir sigurinn er Limhamn úr leik í bikarnum, þar sem liðið hafnar í 3. sæti í sínum riðli. Aðeins efsta liðið fer áfram. Sænska deildin hefst eftir rúman mánuð. Anna Björk leikur þá sitt annað tímabil fyrir liðið og Rakel sitt fyrsta.

Rosengård er hins vegar komið áfram eftir 3:2-sigur á Kristianstad. Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leikinn fyrir Rosengård og Sif Atladóttir allan leikinn fyrir Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad, sem er úr leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert