Coutinho vill fá Neymar til Barcelona

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er velkominn aftur til Barcelona að sögn landa hans, Philippe Coutinho. Coutinho kom til Barcelona í janúar frá Liverpool en Neymar yfirgaf Barcelona og fór til PSG í Frakklandi fyrir metfé síðasta sumar.

„Neymar er frábær leikmaður. Ég hef spilað með honum og það eru forréttindi. Það væri frábært ef hann kæmi aftur og auðvitað myndum við taka honum með opnum örmum,“ sagði Coutinho í samtali við Marca. 

Coutinho var svo spurður út í enn einn Brasilíumanninn, en Barcelona staðfesti kaup sín á Arthur frá Gremio á dögunum.

„Hann er líka frábær leikmaður og annar leikmaður sem ég hef spilað með í landsliðinu. Hann er með mikil gæði og skemmtilegur leikmaður,“ sagði Coutinho. 

Philippe Coutinho í leik með Barcelona.
Philippe Coutinho í leik með Barcelona. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert