Vildi spila Kolbeini um helgina

Kolbeinn skorar gegn Frakklandi á EM 2016 í síðasta leik …
Kolbeinn skorar gegn Frakklandi á EM 2016 í síðasta leik sínum með íslenska landsliðinu. AFP

Claudio Ranieri, þjálfari FC Nantes, sagði við franska fjölmiðla í morgun að hugmyndin hafi verið að gefa Kolbeini Sigþórssyni sinn fyrsta mótsleik í tvö ár gegn Saint-Étienne á sunnudaginn.

Líklegra er þó að ekkert verði af því þar sem Kolbeinn glímir við smávægileg meiðsli í nára. Kolbeinn var í landsliðshópnum sem mætti Mexíkó og Perú vestanhafs á dögunum en gat ekki æft með liðinu vegna meiðsla.

Á nýju ári hefur Kolbeinn unnið hörðum höndum að endurkomu sinni á knattspyrnuvöllinn. Hann skoraði tvö mörk fyrir varalið Nantes fyrr í mánuðinum og virðist aðeins tímaspursmál hvenær langþráði draumurinn verði að veruleika.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert