Cristiano Ronaldo kann vel við sig í leikjum gegn ítalska stórliðinu Juventus ekki síst vegna þess að hann þekkir greinilega vel veikleikana í varnarleik liðsins. Hann hefur sallað inn mörkum gegn Juventus á síðustu árum þegar Real Madrid hefur mætt ítalska meistaraliðinu.
Alls hefur Ronaldo skorað sjö mörk í síðustu fimm viðureignum Real Madrid og Juventus en liðin mætast í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld á heimavelli Juventus í Tórínó. Nú er spurningin sú hvort Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, og varnarmenn liðsins geti komið böndum á Portúgalann eða hvort hann heldur áfram að skora.
Ronaldo mætir í það minnsta vel hvíldur til leiks en hann var ekki í liði Real Madrid sem sótti Las Palmas heim á laugardaginn.