Styttist í endurkomu hjá Neymar

Brasilíumaðurinn Neymar.
Brasilíumaðurinn Neymar. AFP

Unai Emery, þjálfari franska knattspyrnuliðsins Paris SG, reiknar með að Brasilíumaðurinn Neymar snúi aftur til æfinga með Parísarliðinu í lok þessa mánaðar en hann er að jafna sig eftir að hafa ristarbrotnað í leik með liðinu í lok febrúar.

Neymar gekkst undir aðgerð í Brasilíu og hefur að mestu verið í heimalandi sínu í meðferð undir stjórn brasilíska landsliðsins.

„Ég ræddi við Neymar og hann tjáði mér að hann væri á fullu í endurhæfingu. Hann kemur aftur til okkar eftir tvær til þrjár vikur og mun þá vonandi byrja að æfa með okkur,“ sagði Emery á fréttamannafundi í dag.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert