Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Wolfsburg eru mættar til Köln þar sem bikarúrslitaleikur við Bayern München fer fram kl. 13:00.
Sara og Wolfsburg eru búin að eiga magnað tímabil og er liðið þýskur meistari og auk þess komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, þar sem það mætir Lyon á fimmtudaginn í næstu viku.
Hér að neðan má sjá myndband af leikmönnum Wolfsburg mæta í dag og er Sara Björk fremst í flokki.
Die #Wölfinnen sind da 🔥#DFBPokalFrauen #UnserTag #WOBFCB pic.twitter.com/SAbghbHFtG
— DFB-Frauenfußball (@DFB_Frauen) May 19, 2018