Milner og Can klárir í úrslitaleikinn

Emre Can og Mo Salah æfa fyrir leikinn.
Emre Can og Mo Salah æfa fyrir leikinn. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, staðfesti í samtali við heimasíðu enska félagsins að Emre Can og James Milner væru búnir að jafna sig á meiðslum og væru klárir í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn kemur.

Liverpool mætir þá Evrópumeisturum síðustu tveggja ára, Real Madrid, í Kænugarði. „Milner er klár og batinn hjá Emre hefur komið okkur á óvart," sagði Klopp, en Can hefur ekki spilað síðan hann meiddist í mars. 

Liðsmenn Liverpool lentu í Kænugarði í kvöld og verður liðið Evrópumeistari í sjötta skipti með sigri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert