Byrjunarliðum kvöldsins lekið út

Mo Salah er á sínum stað.
Mo Salah er á sínum stað. AFP

Byrjunarliðum Real Madrid og Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta hefur verið lekið út eftir að David Maddick, blaðamaður á Daily Mirror, birti mynd af þeim á Twitter-síðu sinni í gær.

Sjónvarpsstöð úrslitaleiksins birti þá liðin á skjá og smellti Maddick mynd af skjánum. Það er fátt sem kemur á óvart í liðunum. Emre Can er búinn að jafna sig á meiðslum og fer á varamannabekkinn, en byrjunarliðið er eins og flestir bjuggust við.

Að sama skapi kemur fátt á óvart í liði Real Madrid en byrjunarliðin og myndina má sjá hér að neðan. 

Liverpool: Karius, Alexander-Arnold, van Dijk, Lovren, Robertson, Wijnaldum, Henderson, Milner, Salah, Firmino, Mane.

Real Madrid: Navas, Carvajal, Varane, Ramos, Marcelo, Modric, Casemiro, Kroos, Isco, Ronaldo, Benzema.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert