Allir myndaðir nema Ronaldo

Er Ronaldo búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Real …
Er Ronaldo búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Real Madrid? AFP

Það virðist líklegra með hverjum deginum að Cristiano Ronaldo verði ekki leikmaður Real Madrid á næstu leiktíð. Ronaldo sagðist sjálfur ætla að gefa svar um framtíð sína á næstu dögum eftir sigurinn á Liverpool í úrslitaleik í Meistaradeildar Evrópu. 

Ný treyja Real Madrid er komin í sölu og allir leikmenn liðsins voru myndaðir í nýju treyjunni, nema Ronaldo. Ætlir þú að kaupa Real Madrid-treyju merkta leikmanni, kemur mynd af leikmanninum upp, en ekki hjá Ronaldo.

Gareth Bale hefur verið myndaður í treyjunni, þótt framtíð hans sé líka óljós. 

Mynd er af öllum, nema Ronaldo.
Mynd er af öllum, nema Ronaldo. Ljósmynd/realmadrid.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert