Liðsfélagi Gylfa skoraði og fékk rautt

Cenk Tosun, lengst til vinstri, fær að líta rauða spjaldið.
Cenk Tosun, lengst til vinstri, fær að líta rauða spjaldið. AFP

Tyrkinn Cenk Tosun, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton, skoraði mark og fékk rautt spjald í 2:2 jafntefli Túnis og Tyrklands sem áttust við í vináttleik í kvöld.

Tosun kom Tyrkjum í 1:0 með marki úr vítaspyrnu á 54. mínútu en sjö mínútum síðar var honum vikið af velli. Í millitíðinni jafnaði Anice Badri metin fyrir Túnis, sem er á leið á HM. Ferjani Sassi kom Túnisum yfir á 79. mínútu en á lokamínútunni jafnaði Caglar Soyuncu metin fyrir Tyrki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert