Nagelsmann hafnaði Real Madrid

Julian Nagelsmann.
Julian Nagelsmann. AFP

Julian Nagelsmann þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Hoffenheim hefur hafnað tilboði frá Evrópumeisturum Real Madrid um að taka við þjálfun liðsins að því er fram kemur í þýska blaðinu Bild í dag.

Real Madrid leitar nú að eftirmanni Zinedine Zidane en hann sagði óvænt upp störfum hjá Madridarliðinu í síðustu viku.

Nagelsmann, sem er 30 ára gamall og er talinn einn efnilegasti þjálfarinn í Evrópu, vill halda áfram starfi sínu hjá Hoffenheim en hann var ráðinn þjálfari liðsins í október 2015. Undir hans stjórn hafnaði Hoffenheim í þriðja sæti í þýsku 1. deildinni á nýafstaðinni leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert