Allegri sagður hafa hafnað Real Madrid

Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus.
Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus. AFP

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því i dag að Massimiliano Allegri, þjálfari Ítalíumeistara Juventus, hafnaði tilboði frá Evrópumeisturum Real Madrid.

Real Madrid er í þjálfaraleit eftir að Zinedine Zidane ákvað óvænt að segja upp störfum hjá Madridarliðinu.

Fregnir bárust af því í gær að Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefði boðið Allegri starfið en hann ku vilja halda áfram starfi sínu hjá Juventus sem hefur unnið deild og bikar fjórum sinnum frá því hann tók við þjálfun liðsins fyrir fjórum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert