Essien leystur undan samningi

Michael Essien.
Michael Essien. AFP

Ganamaðurinn Michael Essien hefur verið leystur undan samningi við lið Persib Bandung í Indónesíu.

Essien, sem er 35 ára gamall og gerði það gott með Chelsea í mörg ár, þarf að yfirgefa herbúðir Persib Bandung þar sem útlendingarnir eru orðnir af margir hjá liðinu en aðeins er leyfilegt að vera með fjóra erlenda leikmenn í liðunum.

Essien gekk í raðir indónesíska liðsins í mars í fyrra. Hann er ein af nokkrum stjörnum sem liðin í indónesísku deildinni hafa þurft að losa sig við á undanförnum 18 mánuðum en Dider Zokora, fyrrverandi leikmaður Tottenham, og Carlton Cole, sem lék með West Ham og Chelsea, hafa þurft að yfirgefa deildina. Essien hyggst spila í heimalandi sínu á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert