Andri Rúnar lagði upp tvö mörk

Andri Rúnar Bjarnason og félagar eru í fínum málum.
Andri Rúnar Bjarnason og félagar eru í fínum málum. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Andri Rúnar Bjarnason og félagar í sænska liðinu Helsingborg unnu öruggan 4:1-sigur á Degerfors í B-deildinni í fótbolta þar í landi í dag. Andri Rúnar skoraði ekki fyrir Helsingborg en lék allan leikinn og lagði upp tvö mörk.

Helsingborg fór upp í 24 stig og í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum. Andri og félagar hafa verið á fínni siglingu og ekki tapað í átta leikjum í röð og unnið fimm af þeim. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert