Knattspyrnufélögin Juventus og Real Madrid eru nálægt því að komast að samkomulagi um kaupverð ítalska félagsins á Cristiano Ronaldo, besta knattspyrnumanni heims.
Samkvæmt frétt Sky Sports í kvöld gætu félagsskiptin gengið í gegn á næstu tveimur sólarhringum. Juventus þarf að punga út um 100 milljónum evra til að sannfæra Real um að selja sóknarmanninn sem hefur skorað 450 mörk fyrir félagið.
Juventus-menn eru bjartsýnir á að ná að sannfæra Real og Ronaldo, því treyjur félagsins merktar Ronaldo eru nú þegar komnar í sölu.