Liðsfélagar Alfreðs stöðvuðu Bayern

Renato Sanchez og félagar töpuðu stigum á heimavelli.
Renato Sanchez og félagar töpuðu stigum á heimavelli. AFP

Bayern München og Augsburg gerðu í kvöld 1:1-jafntefli í efstu deild Þýskalands í fótbolta á Allianz-vellinum í München. Staðan var markalaus í hálfleik, en á þriðju mínútu síðari hálfleiks skoraði Arjen Robgen fyrir Bayern. Felix Götze jafnaði hins vegar skömmu fyrir leikslok og þar við sat. 

Þrátt fyrir úrslitin er Bayern enn á toppi deildarinnar með 13 stig, en Augsburg er í tólfta sætinu með fimm stig. Alfreð Finnbogason lék ekki með Augsburg vegna meiðsla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert