Danski knattspyrnumaðurinn Nicklas Bendtner hefur ákveðið að hætta við að áfrýja dómi saksóknara í Danmörku sem dæmdi hann í 50 daga fangelsi fyrir líkamsárás.
Danska blaði BT greinir frá þessu en Bendtner réðst á leigubílstjóra í Kaupmannahöfn í september með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði.
Bendnter, sem leikur með norska meistaraliðinu Rosenborg og er þar samherji Matthíasar Vilhjálmssonar, þarf því að dúsa í steininum í 50 daga. Hann gæti þó mögulega fengið að afplána dóminn með ökklabandi en þyrfti að hafa búsetu í Danmörku á meðan það stæði yfir.