Wenger á leiðinni til Bayern?

Arsene Wenger.
Arsene Wenger. AFP

Arsene Wenger, fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal, gæti tekið við þýsku meisturunum Bayern München um áramótin, samkvæmt enska blaðinu Telegraph.

Wenger, sem er 69 ára gamall, hætti störfum hjá Arsenal síðasta vor eftir að hafa stýrt Lundúnaliðinu í 22 ár. Hann sagði í haust að stefnan hjá sér væri að taka við nýju liði um áramót. Hann hafnaði fyrir skömmu að taka við Fulham og kvaðst ekki vilja stýra öðru ensku félagi.

Bayern hefur gengið illa í þýsku 1. deildinni það sem af er tímabilinu, er í fimmta sæti níu stigum á eftir toppliði Dortmund, og Niko Kovac knattspyrnustjóri þar er sagður mjög valtur í sessi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert