Jafnt hjá Sevilla og Atlético

Sóknarmaðurinn Antoine Griezmann bjargaði stigi fyrir Atlético Madrid gegn Sevilla …
Sóknarmaðurinn Antoine Griezmann bjargaði stigi fyrir Atlético Madrid gegn Sevilla í dag. AFP

Sevilla og Atlético Madrid gerðu 1:1-jafntefli í stórleik spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í dag en bæði lið eru í harðri baráttu um spænska meistaratitilinn. Fyrir leikinn var Atlético Madrid í öðru sæti deildarinnar með 34 stig en Sevilla var í þriðja sætinu með 32 stig.

Wissam Ben Yedder kom Sevilla yfir á 37. mínútu en Antoine Griezmann jafnaði metin fyrir Atlético með lokaspyrnu fyrri hálfleiks. Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og niðurstaðan því 1:1-jafntefli í Sevilla.

Atlético Madrid er áfram í öðru sæti deildarinnar með 35 stig, tveimur stigum minna en Barcelona sem á leik til góða í kvöld gegn Getafe, en Sevilla er í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert