Batshuayi á leið til Mónakó

Batshuayi í leik með Valencia.
Batshuayi í leik með Valencia. AFP

Belgíski framherjinn Michy Batshuayi er nálægt því að ganga í raðir franska A-deildarfélagsins Mónakó. Hann er sem stendur að láni frá Chelsea hjá Valencia, en hann vill losna frá spænska félaginu. 

Thierry Henry er knattspyrnustjóri Mónakó og hann þekkir Batshuayi vel, þar sem þeir unnu saman hjá belgíska landsliðinu. Mónakó fékk Cesc Fábregas, fyrrverandi liðsfélaga Batshuayi hjá Chelsea, til félagsins á dögunum. 

Mónakó er í næstneðsta sæti frönsku deildarinnar með aðeins 13 stig eftir 19 leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert