Real Madríd af öryggi í undanúrslit

Karim Benzema skoraði fyrstu tvö mörk Real.
Karim Benzema skoraði fyrstu tvö mörk Real. AFP

Real Madríd varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum spænska bikarsins í fótbolta eftir 3:1-sigur á Girona á útivelli. Real vann tveggja leikja einvígi liðanna samanlagt 7:3. 

Karim Benzema skoraði tvö mörk fyrir Real í fyrri hálfleik, það fyrra á 27. mínútu, og það síðara á 43. mínútu. Pedro Porro gaf Girona smá möguleika með marki á 71. mínútu en Marcos Llorente gulltryggði sigur Real með marki fimm mínútum síðar. 

Valencia, Real Betis og Barcelona höfðu þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert