Cristiano Ronaldo og liðsfélagar hans hjá Juventus þurftu að sætta sig við 2:0-tap fyrir Atlético Madríd í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í Madríd í gærkvöldi.
Eins og gefur að skilja var Ronaldo allt annað en sáttur eftir leikinn. Hann fékk afar óblíðar mótökur frá stuðningsmönnum Atlético Madríd, enda einn besti leikmaðurinn í sögu erkifjendanna í Real Madríd.
Í stað þess að gefa viðtöl eftir leik strunsaði Ronaldo í gegnum viðtalsherbergið og minnti alla á að hann væri búinn að vinna Meistaradeildina fimm sinnum en Atlético Madríd aldrei. Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.